Keflavík varð um helgina fimmta liðið í úrvalsdeild til að gera svokallaðan venslasamning við neðrideildarlið, en þeir gerðu samning við granna sína í Njarðvík. Samningurinn gerir liðunum kleift að miðla leikmönnum sín á milli óhindrað í sumar. Önnur lið sem gert hafa venslasamninga eru Fram og Haukar, KR og Fjölnir, Fylkir og Afturelding og Grindavík og GG.