ÍBV vinna nú hörðum höndum að því að klára alla pappírsvinnu svo að Júgóslavinn Dejan Djokic geti farið að koma sér hingað á klakann. Djokic þessi er 32. ára gamall Júgóslavi sem spilar í stöðu framherja. Eyjamönnum vantar klárlega framherja, og þeir eru einnig í viðræðum við Sigurð Ragnar Eyjólfsson sem væri þeim mikill liðsstyrkut. Djokic hefur mikla reynslu í boltanum og hefur skorað mörg mörk á ferli sínum. Ekki verður þó samið vð Djokic strax, heldur ætla forráðamenn ÍBV að skoða hann vel og vandlega áður en af samningi verður.