Úrvalsdeildarlið Fram hefur gert samning við tvo Króata, þá Mario Pajic og Mario Rimac, þess efnis að þeir leiki með Fram á næstu leiktíð. Þeir voru ásamt Frömurum í æfingabúðum á Spáni fyrir páska, og þóttu standa sig vel. Þeir eru væntanlegir til landsins í næstu viku, og ná því ekki deildarbikarleik Fram og KR, sem fram fer á gervigrasvellinum í Laugardal annað kvöld.