KR-ingar byrjuðu undirbúningstímabilið alls ekki nógu vel en nú virðast þeir vera að hressast. Þeir vinna nú hvern leikinn á fætur öðrum og í gær var KA fórnarlamb vesturbæjarliðsins.

KR vann 3-1 og skoraði Magnús Már Lúðvíksson tvö og Arnar Jón Sigurgeirsson eitt. Það var Þorvaldur Makan Sigbjörnsson sem skoraði mark KA-manna.