Tveir Króatar sem æfðu með Frömmurum á Kýpur fyrir skömmu eru væntanlegir til landsins 20.Apríl. Það eru þeir Mario Pajic (23) sóknarmaður sem hefur leikið með Cibalia í króatísku deildinni, og Mario Maric (26) miðjumaður sem hefur undanfarið leikið í Bosníu.

Ekki eru Frammarar búnir að ganga frá öllum lausum endum varðandi komu Króatanna en mjög líklegt er að þeir spili í Laugardalnum í sumar.