Andra Sigþórssyni tókst loks að skora fyrir Salzburg og ekki nóg með það heldur skoraði hann tvö. Salzburg lögðu neðri deildarlið Floridsdorfer að velli, 2-0, í 3. umferð austurrísku bikarkeppninnar. Nú ætti pressan á Andra að vera að minnka.



Panathinaikos er við það að landa Tékkanum Ivan Hasek sem næsta þjálfara félagsins. Hasek, 38 ára, er núverandi þjálfari Sparta Prag og var fyrirliði tékkneska landsliðsins til margra ára.
Talið er að Hasek geri 3. ára samning sem metin er á 2 milljónir punda. Ætli Helgi fá fleiri tækifæri hjá Ivan?