Barcelona hefur náð samkomulagi við argentíska liðið Boca Juniors um kaup á Juan Roman Riquelme fyrir 18 milljónir punda. Riquelme sem er 22.ára vakti fyrst athygli þegar Boca Juniors og Real Madrid áttust við fyrr í vetur og síðan þá hafa tilboðin streymt inn.