Eins og spennan fyrir leik Bayern Munchen og Manchester United hafi ekki verið næg fyrir, þá hefur Stefan Effenberg hellt olíu á eldinn með því að lofa að skella sér í rauðu leðurbuxurnar og dansa í þeim á Ólympíuleikvanginum í Munchen ef Bayern tekst að leggja United að velli. Það ætlar hann að gera bara til þess að fara í taugarnar á Unitedmönnum. "Þegar við höfum unnið þá mun ég dansa sigurdans. Ég mun fara í kúrekastígvélin mín og rauðu leðurbuxurnar sem ég klæddist í jólapartýi Bayern síðast. Það er það minnsta sem ég get gert.