Juan Sebastian Veron, leikmaður Chelsea hefur verið meiddur allt þetta tímabil og nánast alveg frá því að hann kom frá Man.Utd. síðasta sumar. Veron er nú sagður vilja fara aftur til Ítalíu, er fram kemur í Daily Mirror. Inter Milan hafa gert Chelsea tilboð upp á 9 milljónir punda í kappann en þessi argentíski leikmaður kostaði Chelsea 17 millur í sumar og Man.Utd. 26 milljónir punda 2 árum áður. Það mun vera gaman að fylgjast með viðbrögðum Chelsea og Inter Því þetta tilboð er ekki alveg nógu gott miðað við kostnað á kappanum áður fyrr.