Nígeríbúi svipti sig lífi eftir jafntefli Nígeríu og Ghana í undankeppni HM um síðustu helgi. Maðurinn, sem var miðaldra, hafði sagt vinum sínum að hann myndi svipta sig lífi ef Nígería ynni ekki leikinn. Þeir héldu að hann væri að grínast en öllum að óvörum dró hann upp flösku eftir leikinn og drakk innihaldið. Hann byrjaði að froðufella og svo dó hann skömmu síðar.