Lee Bowyer lenti í neyðarlegu atviki fyrir rétti er hann var beðinn um að fara í buxurnar sem hann sagðist hafa verið í kvöldið sem árásin á unga Asíubúann átti sér stað. Þegar Bowyer ætlaði að skipta um buxur mundi hann eftir því að hann var ekki í neinum nærbuxum og átti því erfitt um vik að skipta um buxur fyrir framan fullan réttarsal.

Gera þyrfti hlé á réttarhöldunum meðan Bowyer skellti sér á salernið og skipti um buxur.

Tekið af: www.Gras.is