AC Milan hefur sagt upp þjálfara sínum Alberto Zaccheroni. AC Milan hefur ekki þótt sannfærandi á þessari leiktíð, og dropinn sem fyllti mælinn var þegar liðið komst ekki áfram úr riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Það varð ljóst þegar liðið gerði jafntefli á heimavelli gegn Deportivo La Coruna.