KR leita enn að eftirmanni Andra Sigþórssonar í framlínuna. Samkvæmt heimasíðu KR þá er von á franska framherjanum Moussa Dagnogo til reynslu á næstunni. Hann hefur leikið með Bristol Rovers, Uniao Madeira og Nantes. Hann hefur þó að undanförnu verið hjá St. Mirren í Skotlandi, en þar leikur líka Maikel Renfurm sem spilaði með KR síðasta sumar.

St. Mirren lét hann fara frá sér 8.mars þar sem ekki var áhugi á að framlengja þann samning af hálfu St. Mirren. Þeir hjá Gras.is hafa grafið upp upplýsingar um manninn sem var víst sorglegur hjá St. Mirren þótt hann hefði skorað í fyrsta leik sínum fyrir félagið. Hann lék svo fjóra leiki í viðbót og gat ekkert.