Leiknismenn tóku á móti KR í Reykjavíkurmótinu í gær og áttu Íslandsmeistararnir í talsverðu basli með ungt og sprækt lið Leiknis. Lokatölur urðu 2-0 og kom fyrra markið ekki fyrr en eftir uþb 70.mín og var þar að verki Sigurvin Ólafsson, en þetta var fyrsta mark hans fyrir félagið.

Það var svo Egill Atlason sem skoraði seinna markið fimm mínútum síðar. Frammistaða Egils hefur verið eitt af fáu jákvæðu í leik Íslandsmeistaranna undanfarnar vikur.