Í Bretlandi sigraði Willenhall Town lið Burton Rivers í 1. deild kvenna í knattspyrnu, 57-0. Enska knattspyrnusambandið er nú að láta kanna það hvort það sé markamet. David Barber, starfsmaður enska knattspyrnusambandsins, segir að stærsti sigur sem hann hafi einhvern tímann heyrt um hafi verið 46:0 sigur hjá kvennaliðinu Doncaster Belles. Hann er nokkuð viss um að sigur Willenhall sé nýtt breskt met.