Það eru sumar kannanir hérna sem meika ekki sense.

Lykilatriði við það að búa til könnun er að hafa mismunandi svör og hafa allavega einn svarmöguleika þar sem maður getur svarað sem “Hlutlaus” eða þegar verið er að spyrja um besta framherjann “Einhver annar”.

Það gengur ekki að hafa bara “já” og “nei” svarmöguleika, það þarf einnig að vera möguleiki á því að vera hlutlaus.

Og svo vantar líka einhverja framherja í þessa könnun. Því það er verið að spyrja um besta framherjann í ensku úrvalsdeildinni frá upphafi, það vantar Michael Owen, Eric Cantona og marga fleiri, en samt komast inn menn eins og Clinton Morrison, Luis Saha og þess háttar menn sem geta bara alls ekki komið til greina sem bestu framherjar.

En þetta er bara mitt álit.

Sokrates