Sol Campbell er samningslaus næsta sumar (eins og flestir vita) og getur því samið við hvaða lið sem er og fengið betri laun. Varaforseti Bayern Munchen, staðfesti í gær að félagið vildi fá Campbell en sagðist búast við harðri samkeppni frá stærstu félögum Evrópu.

Lið eins og Man. Utd., Barcelona og Juventus hafa öll lýst yfir áhuga á að fá Campbell en það verður að öllum líkindum það lið sem vill borga best sem fær kappann.