Dani, Barcelona, hefur hafnað endurbættu tilboði Middlesbrough. Terry Venebles er mikið í mun að krækja í kappann enda hörð fallbarátta framundan hjá Middlesbrough. Dani hefur lítið fengið að spreyta sig hjá Barcelona síðan hann kom til liðsins frá Real Mallorca en hann er tilbúinn til að vera um kyrrt og berjast fyrir sæti sínu í liðinu. “Ég mun aðeins fara ef forráðamenn Barcelona vilja að ég fari,” sagði Dani.

Og bætti við að ef hann færi frá Barcelona þá lægi leiðin niður á við knattspyrnulega séð.
Með fullri virðingu fyrir Middlesbrough þá held ég að það sé rétt hjá honum.