Argentínumenn undirstrikuðu það hversu gríðarlega sterkt landslið þeirra er, eftir að hafa lagt Ítali að velli í Róm 2-1.
Stefano Fiore kom Ítölum yfir á 26. mínútu en þeir Kily Gonzalez og Hernan Crespo svöruðu fyrir Argentínu á 36. og 49. mín.