Það heldur áfram að fækka í landsliðshópi Sven Göran Eriksson fyrir leikinn gegn Spánverjum á morgun. Í gær höfðu Steve McManaman, Kieron Dyer, Ray Parlour dregið sig út úr hópnum og í dag gerði hinn ungi Michael Carrick slíkt hið sama vegna meiðsla. Alls er óvíst hvort Scholes verði með.

Sven Göran er að leika sér aðeins að fjölmiðlum á Englandi þessa dagana með því að gefa ekki upp hver verði fyrirliði landsliðsins gegn Spánverjum, en eins og menn muna lét hann útvarpsmann gabba sig um daginn og þá sagði hann að Beckham yrði fyrirliði.