Gerrard hjá Liverpool til 2007
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, skrifaði í dag undir nýjan samning við félagið. Samningurinn gildir fram á mitt ár 2007. Með undirskrift hans er þungu fargi létt af Gerard Houllier, knattspyrnustjóra Liverpool, en Gerrard hefur verið orðaður við ýmis félög upp á síðkastið þrátt fyrir að hann ævinlega neitað öllum sögusögnum að hann hygðist róa á önnur mið.