Owen frá Liverool takist því ekki að komast í Meistaradeildina
Michael Owen framherji Liverpool segir í viðtali við enska fjölmiðla í dag að hann komi alvarlega til með að hugsa sér til hreyfings frá Liverpool takist því ekki að vinna sér sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Owen á eitt og hálft ár eftir af samningi sínum við Liverpool. Steven Gerrard félagi Owens í Liverpool og enska landsliðsins hefur hins vegar ákveðið að vera um kyrrt á Anfield næstu árin en hann skrifaði í gær undir nýjan fjögurra ára samning.