Liverpool vann sigur í úrslitaleik ensku deildarbikarkeppninar eftir framlengdan úrslitaleik og vítaspyrnukeppni gegn Birmingham City á Millenium-vellinum í Cardiff. Robbie Fowler kom Liverpool yfir með flottu marki utan vítateigs eftir 30 mín. leik. Lokamínúturnar voru hörkuspennandi þar sem Birmingham jafnaði þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma, en þar var að verki Darren Purse úr vítaspyrnu. Liverpool hafði betur í vítaspyrnukeppninni 5:4, eftir að Sander Vesterveld varði tvær vítaspyrnur.