Ég geri mér grein fyrir því að hér hafa verið heitar og barnalegar umræður um leik Arsenal og United. En Jeffers(sá sem setti myndina inn) var það virkilega Nistelroy sem varð sér til skammar um helgina. Það var ekki einu sinni hann sem fiskaði vítið og satt að segja voru Arsenal menn bara heppnir vegna þess að Nistelroy gerði hreint ekki mikið í leiknum!

Ég held að betri fyrirsögn undir myndina væri: ‘Arsenalmenn réðust í barnaskap sínum á Nistelroy’ eða ‘Aumingja Nistelroy,hann var barinn…EFTIR leikinn’. Það sem ég er að reyna að segja er að með hegðun sinni voru það einungis leikmenn Arsenal sem voru sér til skammar um helgina!