Þar sem ég er man utd maður er ekki mikil ást til arsenal.En ég hef alltaf borið mikla virðingu til þeirra. Frábært lið sem spilar skemtilega bolta. En nú upp á síðkastið hef ég verið að missa álit á þeim. Sérstaklega þá á arsene wanger. Maðurinn virðist ekki geta annað en sagt eitthvað virkelega heimskulegt eftir leiki. “Það er ekki hægt að kenna pires um vítið það var dómaranum að kenna” Snild argasta snilld. Þar sem þessi maður er ekki fær að gera neitt annað en að vernda leikmenn sína alveg sama hvað þeir gera og kennir öllum öðrum um finnst mér ekki skrítið að það sé engin agi í þessu liði. Svo virðist vera að dómara leggja hvern einasta leikmann þeirra í einelti um leið og þeir hafa fengið fleiri en eitt spjalld.