1 leikur fór fram í Landsbankadeild karla nú í kvöld en Fylkir sigraði FRAM 2-1 í Laugardalnum. Það eina markverða sem gerðist í fyrri hálfleik var að Ólafur Páll Snorrason brenndi af vítaspyrnu fyrir Fylki, skaut í stöng. Í síðari hálfleik kom Þorbjörn Atli Sveinsson FRAM yfir en Finnur Kolbeinsson náði að jafna með frábæru marki. Það var svo Sverrir Sverrisson sem skoraði sigurmarkið í viðbótartíma með skalla og tryggði Fylki sigurinn. Okkar maður var að sjálfsögðu á vellinum og mun umfjöllun um leikinn birtast innan tíða
Stjórnandi á