Liverpool var að fjárfesta í hvorki fleiri né færri en 5 mönnum!
Ég ætla aðeins að opna umræðu um þá!

Harry Kewell: Frábær leikmaður. getur spilað á miðjunni, frammi og vinstri kant. Með yfirburða tækni og góður skallamaður. kom frá Leeds.

Steve Finnan: Fyrrverandi leikmaður Fulham. hægri bakvörður sem sækir fram. Leikmaður írska landsliðsins.

Florent Sinama-Pongolle & Anthony Le Tallec: Þessir frönsku strákar eru mikil efni. 19 ára gamlir og með heiminn að fótum sínum. Sinama-Pongolle er framherji og mikill markaskorari sem hefur verið líkt við Thierry Henry. Le Tallec er framsækinn miðjumaður/afturliggjandi framherji sem margir telja næsta Zidane. Sjálfur vill hann þó líkja sér við David Trezeguet. Þeir komu frá Le Havre.

Christian Damiano: Þetta er ekki leikmaður heldur þjálfari. Hann var hægri hönd Jean Tigana hjá fulham en eftir að Tigana var rekinn vildi Damiano fara. Hann verður yfir þjálfari hjá Liverpool.

Myndin: frá vinstri! Damiano, Sinama-Pongolle, harry kewell, Gerard Houllier, Le tallec, Finnan