“Nú getur maður kannski farið að njóta tilþrifa hans”.
Hvaða tilþrif ert þú að tala um ? Ég kalla fyrirgjafir inn í teig og almennar sendingar varla tilþrif og það er það eina sem hann gerir.
Patrik Andersson sagði það, áður en var víst hvert hann færi, að hann myndi eflaust floppa á Spáni. Í spænska boltanum fær Beckham ekki allan þennan tíma og svigrúm til að gefa þessa bolta sína, og á Spáni þurfa menn að geta tekið boltann upp sjálfir og tekið menn á sem hann gerir aldrei.