David Seaman gengur til liðs við Manchester City
Forráðamenn enska úrvalsdeildarliðsins Manchester City tilkynntu í morgun að David Seaman markvörður Arsenal til margra ára hefði samþykkt að gera eins árs samning við liðið. Seaman, sem verður fertugur í september, leysir af annan ellismell, Danann Peter Schmeichel, sem hefur ákveðið að leggja markmannshanskana á hilluna.
._.