Cisse vill ganga til liðs við Liverpool.


Djibril Cisse framherji Auxerre í Frakklandi sagði í gær að hann vildi ganga til liðs við Liverpool í sumar. Liverpool hafa verið sterklega orðaðir við Cisse undanfarin ár en meðal annars hefur Guy Roux stjóri liðsins viðurkennt að Gerard Houllier stjóri Liverpool sem er góður vinur hans ræðí ekki við hann í síma án þess að spyrja um Cisse.