Paolo di Canio er að öllum líkindum að leika sínu síðustu leiktíð með West Ham United en samningur hans rennur út í sumar. Liðið á enn eftir að leika tvo leiki á tímabilinu og allar líkur eru á að hann fái að spila þá báða verði hann í nægilega góðu formi. Hann hefur átt viðburðarríkan feril sem ekki er á enda þó hann sé að hætta með West Ham.