Hamann og Henchoz að verða góðir
29.05.2003
Allt útlit er fyrir að Dietmar Hamann og Stephane Henchoz verði báðir til í slaginn þegar undirbúningstímabilið hefst í byrjun júlí.

Hamann fór í aðgerð á sköflungi, en þau meiðsl hafa hrjáð hann nánast í allan vetur. Aðgerðin gekk vel og allt útlit er fyrir að hann muni ná sér að fullu. Þá gengur endurhæfingin vel hjá Henchoz eftir kálfameiðslin sem hafa gert honum lífið leitt og telur Houllier að hann verði einnig til í slaginn þegar æfingar hefjast að nýju.