Chelsea, sem tryggði sér sæti í meistaradeild Evrópu á næsta tímabili, hefur krækt í austurríska markvörðinn Jürgen Macho frá Sunderland. Macho er 25 ára og lék 16 leiki með Sunderland á tímabilinu sem leið en Sunderland féll niður um deild eins og flestir vita. Macho er laus undan samningi hjá Sunderland og kemur því án greiðslu til þeirra Chelsea.


Svo að lokum er rétt að taka það fram að markvörður Man.Utd., Fabian Bartez, sat á tréverkinu í síðustu leikjum meistaranna og er ekki í náðinni hjá Sir Alex Ferguson þessa daganna. Kona Bartez á einnig von á barni í sumar.

Kveðja kristinn18