Leik Suður Afríku og Englands er lokið með sigri Englendinga 1-2. Gareth Southgate skoraði fyrra mark Englendinga á fyrstu mínútu með skalla eftir aukaspyrnu frá David Beckham. Mark Suður Afríku skoraði Benedict McCarthy úr vítaspyrnu á 18. mínútu. Emile Heskey að skoraði síðara mark Englands er á 64. mínútu. David Beckham meiddist í leiknum þegar hann féll harkalega niður á handlegginn. Það var strax farið með hann í röntgen myndatöku og við bíðum frétta. 52 þúsund áhorfendur voru á leiknum í Durban.

Kveðja kristinn18