Kirkland skrifar undir nýjan samning

Chris Kirkland hefur lýst því yfir að hann ætli að skrifa undir nýjan samning við félagið í sumar. Kirkland er að jafna sig af krossbandameiðslum sem hann varð fyrir snemma á árinu og er búist við að hann muni geta hafið æfingar þegar undirbúningstímabilið hefst í byrjun júlí.

“Félagið mun bjóða mér nýjan samning í sumar og ég mun skrifa undir hann. Það að þeir bjóði mér samning þegar ég er meiddur sýnir þá virðingu sem þeir bera fyrir mér sem markmanni og ég ætla að endurgjalda það með því að skrifa undir samning.”

Það er greinilegt að samkeppnin um markmannsstöðuna verður áfram hörð á næsta tímabili.