Nú í hádeginu var á kynningarfundi KSÍ fyrir Landsbankadeildina í sumar tilkynnt spá þjálfara og fyrirliða um úrslit mótsins í sumar. KR-ingum er spáð sigri á mótinu og FH og Val spáð falli. Spáin um að KR-ingar ynnu mótið var nánast einróma en þeir fengu 277 stig af 300 mögulegum. Hér að neðan má sjá spána.

Staða Lið Stig
1 KR 277
2 Grindavík 250
3 Fylkir 246
4 ÍA 218
5 Fram 160
6 Þróttur 113
7 ÍBV 102
8 KA 97
9 FH 95
10 Valur 92

Heimildir:fotbolti.net