Áðan fór fram ótrúlegasti kanttspyrnuleikur sem ég hef séð!
Manchester United - Real Madrid. Fyrri leikurinn fór 3-1 fyrir Madrid.
Snillingurinn Ronaldo skoraði öll þrjú mörkin fyrir Real Madrid. Hann kom Real Madrid yfir á 12. mínútu en Ruud van Nistelrooy jafnaði metin. 1-1 í hálfleik. Þegar seinni hálfleikur var nýbyrjaður skoraði Ronaldo aftur, en Helguera jafmaði metin með skondnu sjálfsmarki. Á 59. mínútu skoraði Ronaldo glæsilegt mark af mjög löngu færi. Beckha, var skipt svo inná og hann skoraði strax úr aukaspyrnu, þversláin inn! Á 84. mínútu skoraði Beckham annað markið sitt í leiknum og fjórða mark Manchester en það dugði ekki til.
Lokatölurnar í báðum leikjunum er 6-5 fyrir Real Madrid.
Madrid menn komast áfram í undanúrslitin í Meistaradeild Evrópu!

Áfram Real Madrid!
Kveðja kristinn18