Í dag mættust Tottenham og Manchester City á White Hart Lane í ensku úrvalsdeildinni. Manchester City menn unnu 2-0 og Sommeil skoraði á 3. mínútu og Barton á 21. mínútu fyrir Manchester City.
Tveir leikir voru í ensku 1. deildinni líka. Ipswich vann Portsmouth 3-0 og Reading vann Nottingham Forest 2-0. Portsmouth er ennþá í fyrsta sæti með 89 stig, en þeir tryggðu sig sæti í úrvalsdeild. Hörkubarátta er hinsvegar um sætin um eitt laust sæti í úrvalsdeild og er Ipswich aðeins einu stigi frá því að komast í umspilið eftir afleitt gengi framan af tímabilinu. Reading og Nottingham Forest eru 4. og 5. sæti en Úlfarnir geta komist uppfyrir Nottingham í 5. sæti ef þeir vinna leik sinn við Millwall á Molineux á morgun.

Kveðja kristinn18