Ok ég var að spá í smá svona info um hvernig þið haldið að leikurinn verði á eftir, ekkert skítkast á liðin, hér eru á ferð tvö bestu lið Englands ekki spurning og ekkert skítkast á einstaka leikmenn, þeir eru flestir á heimsklassa!

Það sem ég held: Ef að Arsenal hefur á góðu liði að skipa(Verður Viera með???) þá verður róðurinn virkilega erfiður fyrir United, sama finnst mér gilda um Giggs, ef hann verður með held ég að Arsenal gæti lent í vandræðum enda Giggs búinn að vera að brillera í vetur! Ég hugsa að leikurinn verði grófur og fátt um mörk, skít samt á að hann fari 1-1!

OK segiði hvað þið haldið og skafiði ekki af því!