AC Milan komst í kvöld í úrslit ítalska bikarkeppnarinnar með 2-1 sigri á Perugia í seinni leik liðanna, en fyrri leikurinn sem fór fram á heimavelli Perugia endaði með markalausu jafntefli. Jon Dahl Tomasson skoraði fyrsta mark leiksins fjórum mínútum fyrir hálfleik og Alessandro Nesta kom AC Milan í tvö núll með skallamarki. Perugia minkaði muninn á 83. mínútu þegar varamaðurinn Caracciolo skoraði með góðu skoti.
Á morgun spila Roma og Lazio á Olympíuleikvangnum í Róm í hinum undanúrslitaleiknum. Roma vann fyrri leikinn 2-1.

Kveðja kristinn18