AF HVERJU geta Arsenal menn ekki farið í gegnum leiki án þess að vera alltaf með þennan FÁRÁNLEGA leikaraskap alltaf hreint..þetta er sko ekkert fyndið lengur…
Nýjasta dæmið er þegar Keown sýndi mikla leikræna tilburði þegar Totti strauk á honum eyrað, nema það að Keown misskildi aðeins þessa snertingu og greip um andlitið…sem varð svo eins og allir vita til þess að Totti var rekinn útaf…
Ég hefði nú frekar gefið Keown spjaldið fyrir þennan leikaraskap..
Ég meina ef þetta lið á að vera svona gott eins og allir eru að segja, af hverju geta þeir þá ekki unnið almennilega með því að spila góðan bolta, skora og það án leikaratilþrifa…þetta er algjör óþarfi og bara til skammar að láta svona…
kræst…<br><br>Vissir þú að tungan í steypireyð er jafnþung og fíll? ;)
Vissir þú að tungan í steypireyð er jafnþung og fíll?