Eiður Smári Guðjohnsen hefur verið tilnefndur sem leikmaður desember mánaðar á heimasíðunni www.fa-premier.com. Eiður er einn af 5 leikmönnum sem eru tilnefndir og er hægt að kjósa einn af þeim á heimasíðunni. Eiður var iðinn við markaskorun hjá Chelsea í desember og gerði 5 mörk í jafn mörgum leikjum. Aðrir leikmenn sem eru tilnefndir eru Ole Gunnar Solskjær (Manchester United), Steven Gerrard (Liverpool), James Beattie (Southampton) og Mart Poom (Derby).