Jamms nú er það orðið opinbert að fréttir af spilafíkn Eiðs Smára eru víst stórlega ýktar. Það var sorpritið People Magazine sem kom fyrst með þessa frétt og allar fréttastofur landsins kokgleyptu við þessu bulli, engum hefur dottið í hug að spyrja Eið sjálfan út í þessar fréttar og samkvæmt áreiðanlegum heimildum Töddans um þessi mál þá er þetta bara bull og vitleysa. Það gerist oft á löngum ferðalögum að leikmenn spila á spil og oft er aðeins lagt undir til að krydda leikinn en ekkert í líkingu við þær upphæðir sem hann er sagður hafa tapað.
Kiddi