Newcastle liðið virðist vera algjörlega óstöðvandi þessa dagana og verða hreinlega betri með hverjum leiknum sem líður. Þeir eru nú 8 stigum frá toppnum og með leik til góða og ætla ég að vera svo djarfur að spá þeim meistaratitlinum í vor. Þeir eru sennilega með besta sóknarliðið í deildinni og nú er vörnin allt í einu orðin feikisterk eftir að Titus Bramble kom aftur eftir meiðsli og þess má geta að nýi demanturinn þeirra Jonathan Woodgate hefur enn ekki spilað fyrir klúbbinn.

www.pungarnir.tk - alvöru síða