Michael Owen hefur viðurkennt það að sjálfstraustið hafi minnkað út af gagnrýninni sem að hann hefur fengið á frammistöðuna þetta tímabilið. Hann hefur verið í sviðsljósinu eftir mikla markaþurrð undanfarið, en hann fullyrðir að hann muni ná sér á strik aftur og hjálpa liðinu að enda tímabilið á viðunandi hátt.
Hann hafði þetta að segja: “Sjálfstraustið hefur beðið hnekki. Ég er bara eins og aðrir leikmenn, ferillinn samanstendur af slæmum tímum og góðum tímum.”Owen segir að tímabilið sé búið að valda honum vonbrigðum.