Ég er búin að vera að lesa soldið margar greinar hérna á þessu áhugamáli! En ég þoli ekki þegar það er verið að tala um einhvað og þá eru menn að segja frá einhverju en þá er ekki nema hálfsagan sögð. Ef að menn gætu bara gert mér þann greiða að vera ekki að segja frá einhverju nema að hafa vit á því og hafa kynnt sér málin aðeins meira en að hafa lesið fyrirsögnina í mogganum, þá væri heimurinn ÆÐI.
Bara sem dæmi þá var ég að lesa kork um David Beckham og Ferguson, og þá var sagt frá hvað Ferguson hafi verið brjálaður og hvað og hvað, en það kom ekki orð fram um það hvernig David Beckham brást við! Ég meina ekki vera að skrifa inn svona greinar! Þetta fer í taugarnar á mér og eflaust fleirum sem að tjá sig bara ekki um það. Í eitt skipti fyrir öll þá ætla ég bara að biðja ykkur ágætir hálsar að kynna ykkur málin áður en það er farið að hneyksla aðra yfir framkomu annara á hinum og þessum einstaklingum.
Er ég eina sem að hef tekið eftir þessu eða eruð þið bara ekki að tjá ykkur um þetta? Ég ætlaði bara að tala um þetta, því að annars getur farið að fækka innan á þessu áhuga,áli fyrr en varir :(
Kveðja Betaz
Kíktu á síðuna mína, hún er svo flott!