Aston Villa lauk nú í morgun kaupum á Kólumbíumanninum Juan Pablo Angel. Angel mun þó ekki skrifa undir samninginn fyrr en á milli jóla og nýárs en hann á ennþá eftir að fá vegabréf, standast læknisskoðun og fá vinnleyfi í Bretlandi. Kaupverðið er um 9,5 milljónir punda. Angel mun sennilega leika sinn fyrsta leik með Aston Villa við Leicester 30 des. Aston Villa sem hefur verið að leita sér að framherja síðan tímabilið byrjaði, bauð einnig fyrir u.þ.b einum mánuði í Suður Afríkubúann Benny McCarthy sem leikur með Celta Vigo á Spáni.
“He's not the Messiah! He's a very naughty boy” - Terry Jones, Life Of Brian