Ég horfði voða spenntur á leikinn í gær og hef að sjálfsögðu mína skoðun á spjaldinu sem Kirkland fékk í lokinn. Það sem mér finnst furðulegt er að í allri umfjöllun um þennan leik sem ég finn á netinu er bara spurt hvort þetta hefði ekki átt að vera rautt spjald, en ekkert fjallað um það afhverju hann missti boltann. Er ég svona vitlaus eða var ekki augljóslega brotið á Kirkland þegar hann missti boltann?