Eiður Smári Guðjohnsen hefur viðurkennt opinberlega að vera spilafíkill og að hafa tapað 400.000 pundum í spilavíti. Hann segir að á aðeins 5 mánuðum hafi hann komið sér i þessa aðstöðu og að ef hann hefði ekki stoppað hefði það endað með því að hann hefði tapað öllu. Með því að koma fram opinberlega með þetta vonast hann til þess að geta hjálpað öðrum ungum leikmönnum svo þeir falli ekki í þessa gryfju sem hann féll í.