Það er ágætt að setja þetta bara hérna í stað þess að senda á alla.
Ég auglýsti eftir stjórnendum á þessu áhugamáli, því ég vonaðist til þess að fá inn virka og áhugasama stjórnendur. Mikið til út af því að ég hef ekki tíma eins og áður, og ætlaði að reyna að draga mig í hlé. En þið sem nýjir eruð (einhver ykkar amk )hafið bara hreint út sagt ekki staðið ykkur eftir væntingum. Ég lét þetta hanga eins lengi og ég þoldi, en í dag, 11 janúar er ég að taka út leiki sem eru síðan fyrir jól!!!!!. Ég lét þetta alltaf vera einn dag í viðbót, því ég vonaði að einhver færi að gera eitthvað.
Eins eru eitthvað um 30 kannanir á bið!!!! Og alveg slatti af þeim er það sama: HVER ER BESTUR OG HVAÐA LIÐ ER BEST. Þetta er algjört rugl.

Takið það til ykkar sem eigið og lærið.